Per mentis geðlækningar
Til okkar leita skjólstæðingar 18 ára og eldri sem þurfa hjálp með greiningu og meðferð á geðrænum vandamálum.
Vinsamlegast athugið að við tökum aðeins við nýjum skjólstæðingum eftir tilvísun frá lækni.
Tilvísunum er forgangsraðað eftir þjónustuþörf og eins margir skjólstæðingar teknir inn og við ráðum við.
Við erum staðsett að Bæjarhrauni 2, 2. hæð til vinstri, 220 Hafnarfirði. Afgreiðslan hefur síma 583 3500 og netfang afgreidsla@gedlaeknir.is
Geðhjúkrunarfræðingur veitir skjólstæðingum stofunnar ráðgjöf í síma 583 3555 (þriðjudaga kl 13-14 og föstudaga kl 11-12) og í netfanginu radgjof@gedlaeknir.is
Við tökum við almennum fyrirspurnum í netfanginu info@gedlaeknir.is. Fyrirspurnum um reikninga skal beina til reikningar@gedlaeknir.is
NÝTT SÍMANÚMER. Per mentis hefur breytt um símanúmer. Nýja númerið er 583 3500. Ráðgjafarsíminn (þri 13-14 og fös 11-12) hefur nú síma 583 3555. ... Lesa meiraFela
Fyrir nokkru opnuðum við nýja vefsíðu á gedlaeknir.is Nú er mestallt efni komið þar inn og tímabært að kynna hana til leiks. Varsågoda! ... Lesa meiraFela
Prentsmiðjan sendi okkur nýtt af öllu...nýja nafnið festist hægt og rólega í sessi. Nýtt skilti komið upp líka. ... Lesa meiraFela
... Lesa meiraFela
NÝTT NAFN. Per mentis geðlækningar breytir nú nafni sínu í Per mentis.
Per mentis er latína og þýðir leið hugans, eða í gegnum hugann. Nafnið lýsir starfsemi okkar vel, sem snýst um að styðja fólk á vegferð sinni, styttri eða lengri.
Ástæða nafnabreytingarinnar er að gamla nafnið var einfaldlega úrelt. Það vísaði í eitt mannsnafn og hafði ekki þá breiðu skírskotun sem við höfum vaxið upp í að þurfa.
Það er að mörgu að huga í nafnabreytingu. Ljóst er að gamla nafnið mun halda áfram að sjást víða til að byrja með. Bæklingar, dreifibréf, SMS áminningar, reikningshausar, kortastrimlar, skilti/merkingar og margt fleira er í breytingu.
Fyrirtækið breytir einnig um nafn, verður Per mentis slf. Kennitalan er hins vegar óbreytt, 660813-0550. Þetta er sama fyrirtæki, sama starfsemi undir sama eignarhaldi og stjórn.
... Lesa meiraFela